Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 10. ágúst 2026

Búast við umferðartöfum víða á vestanverðu landinu á miðvikudag vegna almyrkva á sólu. Fólk er hvatt til fylgjast með myrkvanum heima, leggi það í ferðalög búast við töfum.

Nágrannar segjast hafa séð tvo dökkklædda menn ganga húsi á Kársnesi í Kópavogi í gær þar sem maður lést eftir alvarlega líkamsárás. Nokkrir voru handteknir en lögregla hefur ekki tekið ákvörðun um hvort hún óski eftir gæsluvarðhaldi.

Verkalýðshreyfingin segir stjórnvöld og atvinnurekendur verði axla ábyrgð á erfiðu efnahagsumhverfi og grípa til aðgerða. öðrum kosti verði kjarasamningum sagt upp.

Um 900 milljónir manna búa í löndum og landssvæðum þar sem methiti mældist í júlí. Gróðureldar loga enn í Evrópu og Kanada.

Fjöldi björgunarsveita á Suðurlandi kom björgun göngumanns sem slasaðist á fæti í gilinu við Háafoss í gærkvöldi. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð til en endingu var maðurinn borinn á sjúkrabörum úr gilinu og færður í sjúkrabíl.

Framkvæmdastjóri heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu utan Reykjavíkur segir sífellt flóknara sinna matvælaeftirliti með tilkomu netverslana. Fæðubótarefni hafa valdið koffíneitrun hjá ungmennum sem neyta þess.

Hilmar Örn Jónsson er kominn í úrslit í sleggjukasti á Evrópumóti í frjálsíþróttum í Birmingham sem hófst í morgun, eins og EM í sundi þar sem átta Íslendingar kepptu í dag.

Birt

10. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,