Viðræður Írans og Bandaríkjanna um vopnahlé í Mið-Austurlöndum hófust í Sviss í morgun. Íranar leggja áherslu á að vopnahlé nái einnig til Líbanons og tilkynntu í gær um lokun Hormússunds vegna árása Ísraela.
Ellefu líkamsárásir komu á borð lögreglunnar á Akueyri um helgina, þar sem bíladagar fara fram.
Búist er við að Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands og leiðtogi Verkamannaflokksins, tilkynni afsögn sína á næstu dögum. Þrýstingur á Starmer hefur aukist eftir að hans helsti keppinautur tryggði sér þingsæti í aukakosningum í síðustu viku.
Þjóðgarðsvörður segir Þingvelli hafa verið samkomustað þjóðarinnar í gær rétt eins og í gamla daga. Tónleikahátíðin Bergmál hafi gengið eins og í lygasögu.
Til stendur að stofna sjálfshjálparhóp fyrir karlmenn með andlegan vanda á Austurlandi. Stofnandi hópsins segir skort á úrræðum sem miða sérstaklega að körlum í landshlutanum.
Svikahrappar hafa haft háar upphæðir af fólki síðustu daga, meðal annars á Norðurálsmótin á Akranesi.