Lögreglan fann sextán vændiskonur í tveimur vændishúsum í júní. Kínversk glæpasamtök eru talin hafa gert þær út. Nokkrir kaupendur voru handteknir. Samræmdar aðgerðir gegn mansali voru í 59 löndum.
Sex slösuðust þegar rúta valt í Suðursveit í morgun, enginn lífshættulega.
Úkraínuforseti varar við áframhaldandi árásum á Kyiv næstu daga og segir að Úkraínumenn skorti loftvarnaeldflaugar. Hann mætir á leiðtogafund NATO í Ankara í vikunni.
Nokkuð hefur borið á afbókunum á hótelum á Vestfjörðum í kringum sólmyrkvann. Á Breiðavík losnuðu um 90 pláss á augabragði.
Lögregla lagði hald á 800 kannabisplöntur í húsleit á þremur stöðum á suðvesturhorni landsins. Sex hafa verið handteknir vegna málsins.
Hundrað og tíu milljónir þarf til að lagfæra 11 íbúðir félagslegar leiguíbúðir á Akureyri vegna umgengni leigjenda.
Þjóðhátíðarstemning er í Noregi eftir frækinn sigur norska liðsins á Brasilíumönnum á HM í gær.