Íbúi í Súðavík óttaðist um líf sitt þegar snjóflóð lentu á bíl hans á veginum um Súðavíkurhlíð í gær. 25 sátu fastir í bílum sínum á Holtavörðuheiði í gær og vörðu nóttinni í Reykjaskóla.
Blaðamannafundur er nýhafinn í Pentagon þar sem varnarmálaráðherrann og formaður herforingjaráðsins, ætla að greina frá stöðu mála í styrjöldinni í Mið-Austurlöndum. Bandaríkin boða enn harðari aðgerðir gegn Írönum.
Mikil verðmæti eru unnin í uppsjávarvinnslum landsins og fullþroskuð loðnuhrogn fylla kör í þúsundatali. Vertíðinni er að ljúka og skipin að klára síðustu túrana.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir aukið eftirlit NATO á norðurslóðum jákvætt. Hún ítrekaði sjálfsákvörðunarrétt Grænlendinga á fundi með embættismönnum í Washington.
Davíð Oddsson, fyrrverandi borgarstjóri og forsætisráðherra, verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju í dag. Útförin, sem er opinber, hefst klukkan eitt og verður í beinni útsendingu í sjónvarpinu.
60 starfsmenn Skattsins aðstoða almenning við skattframtalsskil í dag - fresturinn til að skila því inn rennur út á miðnætti.
Um sextán þúsund ætla á tónleika Laufeyjar í Kórnum um helgina. Tónleikagestir verða ferjaðir frá Smáralind að Kórnum og lokað fyrir almenna umferð þangað. Sindri Ástmarsson, verkefnastjóri hjá Senu, segir mikinn undirbúning á bak við svo stóra tónleika. Mörg hundruð manns koma að því.
Valur varð deildarmeistari í handbolta karla í gærkvöld með sigri á ÍBV í Vestmannaeyjum.