Ofbeldisbrot sem tíu menn segjast hafa orðið fyrir í fóstri í Bakkakoti á Suðurlandi eru líklega fyrnd, að sögn lögreglustjóra. Forsætisráðherra hittir nokkra þeirra ásamt lögmönnum í hádeginu.
Staða Keirs Starmer sem forsætisráðherra Bretlands hefur aldrei verið veikari, hvernig hann hefur farið með mál Peters Mandelsons vekur ekki aðeins óánægju hjá andstæðingum, heldur líka samflokksmönnum.
Forsætisráðherra viðurkennir að mikla verðbólgu í janúar megi að hluta rekja til breytinga sem ríkisstjórnin gerði um áramót. Hins vegar sé engin ástæða til að breyta um stefnu.
Um tveggja ára gamalt barn var skilið eitt eftir á leikskóla í Breiðholti þegar honum var lokað á mánudag. Þetta er í annað sinn sem slíkt gerist í Reykjavík á einu ári.
Sveitarfélög þurfa að huga betur að hættu vegna sjávarflóða og þeir sem skipuleggja og byggja hús við fjöruborðið geta ekki vænst þess að fá tjón bætt. Náttúruhamfaratrygging Íslands hefur varað sveitarfélög og húseigendur við þessu.
Stór hluti innflytjenda nýtti ekki kosningarétt sinn í síðustu sveitarstjórnarkosningum, Reykjanesbær ætlar að halda vinnustofur í mars til að auka kosningaþátttöku þeirra.
Keflavík og Grindavík mætast í nágrannaslag í úrslitum bikarkeppni kvenna í körfubolta. Þetta varð ljóst eftir æsispennandi undanúrslit í gærkvöld.