Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 14. febrúar 2024

VR og Efling undirbúa beita verkföllum. Samninganefnd VR fékk umboð til þess í gærkvöld og niðurstaða könnunar á afstöðu félagsmanna í Eflingu verður fljótlega ljós.

Fulltrúar Hamas funda í dag með ráðamönnum frá Egyptalandi og Katar um vopnahlé á Gaza. Reynt er koma því á áður en Ísraelar hefja allsherjar innrás í Rafah.

Rektor Háskóla Íslands hefur áhyggjur af því boðaðar hugmyndir um niðurfellingu á skólagjöldum sjálfstætt starfandi háskóla geri fjármögnun háskólastigsins erfiðari ef ekki komi til nýtt fjármagn.

Frumvarp um breytingar á raforkulögum með forgang fyrir heimili og minni notendur verður ekki lagt fyrir Alþingi á næstunni eins og til stóð. Samfélagsleg ábyrgð orkufyrirtækja er betri en íþyngjandi lög, segir formaður atvinnuveganefndar.

Framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins segir mikilvægt grafa ekki undan fælingarmætti bandalagsins með ummælum á borð við þau sem Donald Trump lét falla um helgina.

Mögulegur loðnufundur suðaustur af landinu verður rannsakaður betur í dag. Sáralítið fannst það sem af er mælingum Hafrannsóknastofnunar, sem hafði gefið út ráðgjöf um engar loðnuveiðar á þessari vertíð.

Um helmingur landsmanna er andvígur þátttöku Íslands í Eurovision. Konur og yngra fólk var frekar á móti þátttöku en karlar og þeir sem eldri eru.

Félagaskipti sambísku landsliðskonunnar Rachel Kundananji frá Madrid CFF til Bay FC í Bandaríkjunum eru þau langdýrustu í sögu kvennafótboltans. Félög eyddu um 150% meira í leikmenn í janúar en á sama tíma í fyrra.

Frumflutt

14. feb. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,