Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 12. febrúar 2026

Öryggi sjúklinga og starfsfólks á bráðamóttöku Landspítala í Fossvogi er ógnað á hverjum degi, segir starfsfólk - ekki hægt tryggja þar sýkingavarnir, brunavarnir eða persónuvernd. Heilbrigðisráðherra tekur undir áhyggjurnar, gera þyrfti ráðstafanir ef hópslys yrði.

Bresk stjórnvöld ætla verja hálfum milljarði punda í loftvarnir í Úkraínu og fleiri ríki tilkynna um stuðning sinn í dag. Staðan í Úkraínu er aðal umræðuefnið á fundi varnarmálaráðherra Atlantshafsbandalagsins í Brussel.

Sænsk flugsveit lenti á Keflavíkurflugvelli í morgun. Þetta er í fyrsta sinn sem sænski flugherinn sinnir loftrýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins hér.

Átján ára kona er grunuð um hafa skotið átta til bana í smábæ í Kanada á þriðjudag og svipt sig svo lífi. Sex börn eru á meðal þeirra látnu.

Vegagerðin telur það gæti kostað allt níu og hálfan milljarð laga veginn um Fjarðarheiði þannig hann uppfylli kröfur.

Æskilegt væri koma daglegri hreyfingu inn í skólastarf, mati lektors við Háskólann í Reykjavík. Meðal markmiða stjórnvalda er offita barna verði ekki algengust á Íslandi af Norðurlöndunum.

Stúdentar mótmæla hækkun skrásetningargjalds við Háskóla Íslands. Gjaldið hefur verið óbreytt í 12 ár.

Jafnvirði nærri 150 milljóna króna hefur safnast fyrir fjölskyldu bandaríska leikarans James Van Der Beek sem lést úr krabbameini í gær. Hann var 48 ára og lætur eftir sig eiginkonu og sex börn.

Kristrún Guðnadóttir keppir í 10 kílómetra síðagöngu á vetrarólympiuleikunum eftir hádegi. Þetta er seinni grein hennar af tveimur.

Birt

12. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,