Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 8. mars 2026

Ísraelsmenn hóta herja á næsta leiðtoga Írans, sem verður líklega kynntur í dag. Eldar loga í olíubirgðastöðvum í Teheran eftir árásir Ísraelsmanna og Bandaríkjamanna í nótt. Íranar gerðu árásir á fimm lönd við Persaflóa.

Lítil virkni og lágt gengi margra félaga er áhyggjuefni fyrir stöðuna á íslenskum hlutabréfamarkaði, segir hagfræðingur. Markaðurinn daufur og fylgi ekki alþjóðlegum sveiflum.

Rósa Björk Brynjólfsdóttir er nýr formaður Vinstri grænna. Hún segir það tómarúm á vinstri væng íslenskra stjórnmála. VG ætli svara ákalli um aukna áherslu á náttúruvernd og mannréttindi.

Talsmaður landssambands grásleppuútgerða er afar ósáttur við frumvarp um afnám kvótasetningar á grásleppu. Hann segir málsmeðferðina vera hrafnaspark frá a til ö.

Sveitarstjóri í Hvalfjarðarsveit undrast til standi skera ofan af fasteignaskatti sem sveitarfélagið fær af stóriðu og útdeila til annarra sveitarfélaga.

Merktum lunda sem hefur verpt í Vestmannaeyjum skolaði dauðum á land í Portúgal fyrir skemmstu. Hann er einn þúsunda sem hefur rekið á land í Evrópu undanfarnar vikur.

Það hefur verið skíðað og sprett og skransað eftir ísilögðu Mývatni síðustu daga á Vetrarhátíð í Mývatnssveit. Við heyrum af hundasleðakeppni sem stendur sem hæst núna í hádeginu.

Eftir glæstan sigur Íslands á Svartfjallalandi fyrr í vikunni er komið síðari leik liðanna í undankeppni EM kvenna í handbolta. Landsliðsþjálfarinn býst við grimmu liði Svartfellinga á heimavelli.

Birt

8. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,