Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 16. nóvember 2023

Ýmislegt bendir til þess það styttist í gos miðað við reynslu af fyrri eldsumbrotum á Reykjanesskaga. Kvikan flæðir enn inn en á sama tíma dregur úr virkni á svæðinu.

Lögreglan á Suðurnesjum byrjaði hleypa Grindvíkingum sem búa á rauða svæðinu svokallaða inn í bæinn í morgun. Unnið er viðgerð til koma rafmagni á hluta bæjarins.

Formaður fjárlaganefndar Alþingis segir viðbúið hamfarirnar á Suðurnesjum og í Grindavík hafi áhrif á rekstur ríkissjóðs á næsta ári.

Byssur, handsprengjur, skotfæri og önnur hertól eru meðal þess sem Ísraelsher segist hafa fundið á Al-Shifa sjúkrahúsinu á Gaza. Mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna hefur áhyggjur af vaxandi spennu á Vesturbakkanum.

180 Venesúelabúar fóru úr landi í gær eftir hafa verið synjað um dvalarleyfi hér á landi. Formaður Félags umsækjenda um alþjóðlega vernd segir félaginu hafa borist upplýsingar í morgun um vegabréf þeirra hafi verið gerð upptæk af yfirvöldum og þau flutt í einhvers konar varðhald.

Meirihluti þingmanna á spænska þinginu styður nýja stjórn Pedro Sanchez, leiðtoga sósíalista. Niðurstaðan varð ljós fyrir nokkrum mínútum. Meirihlutinn náðist eftir umdeilt samkomulag um sakaruppgjöf sem gert var við flokk aðskilnaðarsinna í Katalóníu.

Isavia ætlar skipta ensku út fyrir íslensku sem fyrsta tungumáli á skiltum í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Fyrirtækið gefur sér rúmt ár í koma þessu í framkvæmd.

Frumflutt

16. nóv. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,