Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 28. september 2023

Stjórnarformaður Grundarheimilanna fundar með tugum starfsfólks sem til stendur segja upp og vinnur einkum við ræstingar og þvotta. Formaður Eflingar boðar aðgerðir.

Verðbólga hækkaði lítillega á milli mánaða og er komin í átta prósent. Verðhækkun og skóm og fötum er ein helsta orsökin.

Ekkert lát virðist á ofbeldisöldu í Svíþjóð. Tveir karlar voru skotnir til bana í Stokkhólmi í gærkvöld og kona fórst í sprengjuárás í Uppsölum. Leiðtogi Jafnaðarmanna vill herinn til aðstoðar.

Lögum um hatursorðræðu og hatursglæpi er vart beitt hér á landi, sagði þingmaður Pírata á Alþingi í morgun. Þar var rætt um líkamsárás á hinsegin mann í miðborg Reykjavíkur í vikunni

Forstjóri Vinnumálastofnunar segir áhyggjuefni hversu hátt hlutfall atvinnulausra eru erlendir ríkisborgarar, eða tæplega 50 prósent. Engin einhlít skýring á þessu.

Útgjöld til hernaðarmála verða aukin um sjötíu prósent í Rússlandi á næsta ári. Þau nema þá sex prósentum af landsframleiðslu.

Forsetaefni Repúblikanaflokksins skutu á Donald Trump í kappræðum í gær. Trump mætti ekki sjálfur og hélt eigin kosningafund í staðinn.

Hvalaþjálfari tekur þátt í björgun háhyrningsins sem liggur strandaður í Gilsfirði. Hvalnum verður klappað og reynt láta hann gera jógaæfingar til róa hann fyrir flutninginn.

tegund sæsnigla hefur numið land í fjörum Breiðafjarðar. Stórmerkur fundur segja líffræðingar.

Frumflutt

28. sept. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,