Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 7. maí 2024

Ísraelsher gerði árásir á Rafah í nótt og drap yfir tuttugu manns. Óttast er þetta undanfari allsherjarinnrásar. Herinn hefur náð landamærastöð í borginni á sitt vald, og þar með einu leiðinni til Egyptalands.

Fjármálaráðherra telur ekkert því til fyrirstöðu seðlabankinn lækki stýrivexti á morgun. Hann segir vísbendingar um hávaxtastefna bankans komi í veg fyrir verðbólgan hjaðni.

Framlag Íslands í Júróvision verður flutt á fyrri undanúrslitum í Malmö í Svíþjóð í kvöld. Keppnin er umdeild vegna þátttöku Ísraela og stríðsreksturs þeirra á Gaza. Auglýsingasala á RÚV í aðdraganda keppninnar hefur verið dræm.

Landris er stöðugt í Svartsengi og enn töluverð óvissa um hvenær dregur til tíðinda. Áfram er hætta á hraunflæði í Grindavík.

Flugfélög og ríkið greinir mjög á um hvað kostar halda úti innanlandsflugi. Stjórnarformaður Ernis og Mýflugs segir ekki koma lengur til greina félögin niðurgreiði innanlandsflug með annarri starfsemi.

Tuttugu og þrír hafa greinst með kíghósta á árinu og líklegt smitin verði fleiri. Kíghósti getur verið sérstaklega hættulegur ungum börnum.

Rafrænni kosningu til biskups er nýlokið og niðurstaða ætti liggja fyrir innan stundar.

Frumflutt

7. maí 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,