Verðbólga jókst á milli mánaða og er fimm komma sex prósent og hefur ekki verið svo mikil í tvö ár. Forsendur kjarasamninga eru brostnar og nú má segja þeim upp. Rætt verður við fjármálaráðherra í beinni.
Yfir 1.400 er enn saknað eftir flóð og aurskriður við landamæri Tíbet og Nepal. Fleiri en þrjúhundruð hafa fundist látnir. Sérfræðingur líkir hamförunum við flóðbylgju á landi.
Heilsu Haraldar Noregskonungs hefur hrakað og ástandið er alvarlegt. Konungsfjölskyldan er hjá honum og helstu ráðamenn hafa aflýst fyrirhuguðum viðburðum.
Það stefnir í met kjörsókn utankjörfundar - fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna um aðildarviðræður við ESB sem er eftir tvo daga.
Íslendingar ganga að kjörborðinu í þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort Ísland eigi að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið eftir tvo daga. Það stefnir í met kjörsókn utan kjörfundar.
Sema Erla Serdaroglu stofnandi Solaris - hjálparsamtaka fyrir flóttafólk og hælisleitendur, hefur verið ákærð fyrir brot á lögum um opinberar fjársafnanir.
Akureyrarbær fagnar 164 ára afmæli í ár og hátíðahöldin ná hápunkti um helgina á Akureyrarvöku. Fjölmargir viðburðir eru á dagskrá hátíðarinnar.
Félagsskipti spænsku fótboltakonunnar Esther González til AL KADSÍA Al Qadsiah í Sádi-Arabíu hafa verið harðlega gangrýnd. Samkynhneigð er ólögleg í landinu og González hefur eytt öllum myndum af eiginkonu sinni af samfélagsmiðlum sínum.