Þingkosningar fara fram í Svíþjóð í dag og útlit er fyrir góða kjörsókn. Metkjörsókn í utankjörfundaratkvæðagreiðslu gæti tafið fyrir talningu.
Maður sem er grunaður um að hafa veitt kærustu sinni lífshættulega áverka í sumar situr í gæsluvarðhaldi. Lögregla fann blóðuga exi og kaðal á heimil parsins.
BRICS-ríkin hvetja til stillingar í stríðinu í Miðausturlöndunum. Þetta er í fyrsta sinn sem þessi ríki, meðal annars Kína, Rússland og Íran, komast að samkomulagi um ályktun um stríðið.
Áttatíu tonna trébátur sökk í Hafnarfjarðarhöfn í nótt. Báturinn hefur sokkið þrisvar sinnum á sex árum. Báturinn hefur verið bundinn við bryggju óhreyfður.
Atvinnuvegaráðherra hyggst skapa lagaramma utan um laxeldi utan fjarða. Greinin er enn á hugmyndastigi hér á landi.
Fimmtíu ára afmæli Kattavinafélags og þrjátíu og fimm ára afmæli Kattholts er fagnað í dag, við kíkjum í afmælisveisluna í fréttatímanum.