Utanvegaakstur er óþolandi og óverjandi, segir umhverfisráðherra. Brýnt sé að taka fastar á slíkum brotum til að tryggja að sektir bíti og hafi varnaðaráhrif.
Hitabylgja heldur áfram í Evrópu. Búist er við yfir 35 stiga hita í dag hjá tæplega hundrað miljónum manna, aðallega í Frakklandi og á Spáni. Sendiherra Íslands á Spáni segir jafn erfitt að venjast hita og kulda.
Systir manns, sem fannst látinn ásamt dóttur sinni á Edition-hótelinu í Reykjavík í fyrrasumar, segir hann hafa sagst vilja deyja.
Gervilýðræðisríki í Evrópu búa sig undir stríð við Rússland og beita lygum til að réttlæta framgöngu sína, segir Rússlandsforseti.
Nýr vegur um Hornafjarðarfljót verður opnaður í dag. Það er fyrsta framkvæmd sem er fjármögnuð sem samvinnuverkefni og veggjöld eiga að standa undir hluta kostnaðar.
Borgarstjóri segir að setja eigi milljarða í að laga gangstéttir. Kona á tíræðisaldri slasaðist illa um helgina þegar hún steyptist úr hjólastól á illa farinni stétt.
Farsímasala hefur ekki aukist þrátt fyrir að Fjarskiptastofa telji enn í umferð um 6000 tæki sem ekki virki sem skyldi eftir að slökkt var á 2g tvö- gé og 3g þrjú-gé sendum landsins.
Lokaumferð riðlakeppni HM í fótbolta hefst í dag. Sex leikir eru á dagskrá í kvöld og í nótt. Skotar þurfa góð úrslit gegn Brasilíu og Kanada getur komist í útsláttarkeppni HM í fyrsta sinn.