Geimfarið Orion með fjórum geimförum um borð er á sporbaug um jörðu og setur stefnuna á tunglið síðar í dag. Þetta er fyrsta mannaða tunglferðin í meira en hálfa öld.
Íranar vara við hörðum gagnárásum eftir hótanir Bandaríkjaforseta í gær um árásir sem færi Íran aftur til steinaldar.
Mennta- og barnamálaráðuneytið telur ekki ástæðu til að endurskoða minnisblað ráðherra um samanburð á skólakerfinu við önnur Evrópuríki. Kennsludagar séu færri en lögbundnir skóladagar.
Veðrið tekur að lægja á stórum hluta landsins síðdegis og í kvöld, að sögn veðurfræðings Vegagerðarinnar. Viðbúið er að vegum á Norður- og Austurlandi verði lokað síðdegis. Gular viðvarnir eru í gildi á Ströndum, Norðurlandi vestra og Miðhálendinu.
Passíusálmar Hallgríms Péturssonar hafa verið hluti af páskahefð Íslendinga um aldir og verða venju samkvæmt fluttir í heild sinni í Hallgrímskirkju á morgun. Átta lesarar skipta flutningnum á milli sín.