Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 6. mars 2026

Ísraelsher hefur í morgun gert loftárásir á Líbanon og Íran. Nýr æðstiklerkur Írans er sagður hafa særst á fyrsta degi átakanna.

Borgarfulltrúarnir Kjartan Magnússon og Marta Guðjónsdóttir, sem gengu úr Sjálfstæðisflokknum í Miðflokkinn, hafa stofnað nýjan flokk óháðra sem verður kynntur á fundi forsætisnefndar á föstudaginn. Þeim verður vikið úr öllum ráðum og nefndum í borginni.

Rannsókn lögreglu á tveimur hópnauðgunum í Reykjavík í apríl í fyrra er lokið. Annað málið er komið á borð héraðssaksóknara. Brotin áttu sér stað með tveggja vikna millibili.

Hæstiréttur kveður í dag upp dóm í hryðjuverkamálinu. Búast við dómurinn verði fordæmisgefandi.

Ráðherra menningarmála vill litið verði á hugverkastuld til jafns við annars konar þjófnað. Hann vill hámarksrefsing við höfundalagabrotum verði hækkuð úr tveggja ára fangelsi í sex.

Þingmenn ræddu þingsályktunartillögu ríkisstjórnarinnar um aðildarviðræður við Evrópusambandið í tíu klukkustundir í gær. Umræðan stóð fram undir miðnætti. Hún heldur áfram á mánudag.

Utanríkisráðherra segir í viðtali við Politico Ísland gæti lokið aðildarviðræðum við Evrópusambandið á einu og hálfu ári, ef niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslu verður halda áfram viðræðum.

Hláka og hlýindi síðustu daga hefur leikið vegi grátt á Vesturlandi og Vestfjörðun. Vegagerðin hefur sett þungatakmarkanir.

Leigubílstjórar á landsbyggðinni sjá fram á stóraukinn kostnað í sumar þegar boðuð stöðvarskylda tekur gildi. Leigubílstjóri á Egilsstöðum segir viðskiptin ekki standa undir mánaðargjaldi stöðvanna.

Arna Sigríður Albertsdóttir lauk keppni á Vetrarólympíumót fatlaðra í dag þegar hún keppti í tíu kílómetra sitjandi skíðagöngu.

Birt

11. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,