Hútar gerðu í nótt fyrstu árásir sínar á Ísrael í stríðinu í Mið-Austurlöndum. Mikil neyð er í Líbanon þar sem yfir milljón manna er á flótta.
Formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga á von á að funda með menntamálaráðherra um tillögur ráðuneytisins að breytingum á skólakerfinu. Ráðherrann vill fjölga kennsludögum og kennslustundum.
Akstursskilyrði verða erfið víða seinni partinn þegar gular veðurviðvaranir taka gildi á stórum hluta landsins.
Yfirvöld á Ítalíu rannsaka hvort snyrtivörufyrirtæki hafi farið á svig við lög með því að hvetja börn til að kaupa húðvörur sem ætlaðar eru fullorðnum.