Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 28. febrúar 2026

Bandaríkin og Ísrael réðust á Íran í morgun. Trump segir markmiðið koma klerkastjórninni frá. Íranir hafa svarað með árásum á herstöðvar Bandaríkjanna í Kúveit, Sameinuðu arabísku furstadæmunum, Katar og Barein.

Íslendingur í Kúveit heyrir sprengingar í fjarska, þegar flugskeyti eru skotin niður -- en segir fjölskylduna upplifa sig örugga. Hann var með börn sín á leikvelli þegar loftvarnaflauturnar ómuðu um borgina í morgun.

Róttækar breytingar verða á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík sem kynntur verður síðdegis. Samkvæmt heimildum fréttastofu verður Bjarni Guðjónsson í öðru sæti listans og Brynjar Níelsson í því þriðja. Reynslumiklir borgarfulltrúar verða ekki á lista.

Verktakinn, sem var látinn fara frá framkvæmdum við Ölduselsskóla fyrirvaralaust, hafði nýverið ráðið inn tíu nýja starfsmenn vegna verkefnisins, sem hafa misst vinnuna. Hann íhugar skaðabótamál við Reykjavíkurborg.

Dalamenn fagna því í dag geta loks skellt sér í sund í bænum, þegar sundlaug var loks opnuð í íþróttahúsinu.

Íslenska karlalandsliðið í körfubolta vann Litáen í ótrúlegum leik í gærkvöld. Í dag eru bikarúrslit í handbolta á dagskrá.

Birt

28. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,