Nærri tvö hundruð atvik voru skráð hjá björgunarsveitum víða um land í illviðrinu í gær. Lögreglan á Suðurlandi og Vegagerðin segja marga ökumenn ekki hafa vitað af vegalokunum.
Lögregla og slökkvilið voru kölluð út þegar bárujárn og annað lauslegt fauk af byggingarsvæði í Fannborg í Kópavogi og olli skemmdum á nærliggjandi húsum.
Tveggja daga heimsókn varaforseta Bandaríkjanna til Ungverjalands er talin skýr yfirlýsing um stuðning við forsætisráðherra Ungverjalands og Fidez flokk hans fyrir þingkosningarnar á sunnudag.
Hvalfjarðargöng verða lokuð í kvöld og fram á morgun, og allar nætur mánudaga til föstudaga næstu sjö vikur.
Sögulegum Artemis-leiðangri í kringum tunglið er lokið. Geimfararnir í Orion-farinu fóru lengra út í geim en nokkur hefur gert, misstu samband við jörðu um skamma hríð og sáu sólmyrkva.
Nice Air hefur ekki millilandaflug frá Akureyri fyrr en í fyrsta lagi á síðustu mánuðum þessa árs. Áður stóð til að hefja flug í febrúar.
Samningar farmanna og hafnarverkamanna eru lausir. Sjómannafélag Íslands hefur boðað vinnustöðvanir í næstu viku.