Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 29. janúar 2024

Grindvíkingar fengu fara heim og vitja eigna sinna í morgun í fyrsta sinn frá gosi. Þæfingsfærð á Suðurstrandarvegi gerði ökumönnum erfitt fyrir í morgun.

Stjórnvöld í Íran þvertaka fyrir bera nokkra ábyrgð á árás sem gerð var á bækistöðvar Bandaríkjahers í Jórdaníu í gær, þar sem þrír hermenn létust. Þrengt er Bandaríkjaforseta og hann krafinn um bregðast hart við.

Fulltrúi Framsóknarflokks í utanríkismálanefnd Alþingis gagnrýnir utanríkisráðherra fyrir samráðsleysi þegar hann tók ákvörðun um fresta greiðslum til Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna.

Mótmæli þúsunda franskra bænda í dag settu umferð í París rækilega úr skorðum. Versnandi lífskjör eru bændum efst í huga í þessu helsta landbúnaðarríki ESB. 15 þúsund lögreglumenn standa vaktina í París frönsku höfuðborginni.

Oddviti Viðreisnar í bæjarráði Kópavogs vill ekki ráðist verði í umfangsmikla uppbyggingu fyrir eldri borgara í landi Gunnarshólma. Jörðin utan vaxtarsvæðis höfuðborgarsvæðisins, á vatnsverndarsvæði og auki ekki fýsilegt einangra eldri borgara með þessum hætti.

Kona sem er ákærð fyrir drepa mann í Bátavogi í Reykjavík í september vill ekki gert annað mat á sakhæfi hennar. Hún hefur þegar sætt geðmati. Héraðssaksóknari óskaði eftir öðru mati en konan hefur kært þá ákvörðun.

Óhætt er ætla Brennisteinsfjöll séu rumska, mati prófessors í eldfjallafræði. Jarðskjálftahrina var suðaustur af höfuðborgarsvæðinu um helgina.

Frumflutt

29. jan. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,