Stjórnvöld í Marokkó segjast hafa varað Spánverja við straumi förufólks til hjálendunnar Ceuta, eftir nýlegan úrskurð hæstaréttar Spánar um málefni flóttafólks. Næstum sextíu þúsund manns flykktust yfir landamærin til Ceuta um helgina.
Bandero, skip Paul Watson samtakanna, var kyrrsett vegna ófullnægjandi gagna, segir Samgöngustofa. Útlendingastofnun metur hvort skipverjum verður vísað úr landi.
Lögregla hefur lítið í höndunum við rannsókn á innbrotum í þrjú bú á höfuðborgarsvæðinu. Enginn liggur undir grun.
Innviðaráðuneytið vill herða lög um landshöfuðlén Íslands, punktur is. Uppi eru áform um að veita lögreglu auknar heimildir til að loka vefsíðum sem tengjast brotastarfsemi.
Þrír danskir drengir voru ákærðir fyrir að skipuleggja árás á ungmenni í grunnskóla á Austur-Jótlandi. Yfirvöld segja þá hafa ætlað að beita sprengjum.
Karlmaður á fertugsaldri hefur verið handtekinn í tengslum við einn þriggja skógarelda sem hafa geisað í Washington-ríki í Bandaríkjunum síðustu daga. 65.000 manns þurftu að yfirgefa heimili sín.
Hinsegin dagar voru settir á hádegi. Fjölbreytt dagskrá verður alla vikuna sem nær hápunkti í Gleðigöngunni á laugardaginn