Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 15. apríl 2026

Mennta- og barnamálaráðherra ætlar breyta einkunnakerfi í grunnskólum. Formaður Kennarasambandsins heyrði fyrst í dag af áformunum og sakar stjórnvöld um samráðsleysi.

Aðalmeðferð í Þorlákshafnarmálinu hófst í Landsrétti í morgun. Tveir sakborningar áfrýjuðu sautján ára fangelsisdómi fyrir verða karlmanni á sjötugsaldri bana í fyrra.

Biðlistar eftir meðferð í Krýsuvík lengjast sífellt. Forstöðumaður segir kókaínneyslu aukast og vill auknar forvarnir.

Sigurvegari þingkosninga í Ungverjalandi fór í morgun í fyrstu viðtölin í ríkisfjölmiðlum landsins í eitt og hálft ár. Hann krefst afsagnar forsetans, sem er bandamaður Viktors Orbans.

Persónuvernd endurgreiðir sektir sem hún lagði á fimm sveitarfélög fyrir nota skýjalausn Google í grunnskólastarfi.

Bóndi í Kjósarhreppi telur brotið á kosningarétti sínum. Þar verður ekki gengið til sveitarstjórnarkosninga því aðeins einn framboðslisti barst.

Hljómsveitin VÆB frumflytur lag Barnamenningarhátíðar 2026 í Breiðholtsskóla í hádeginu. Við lítum inn í fréttatímanum.

Kvennalandsliðið í fótbolta færðist skrefi nær HM-sæti með sigri á Úkraínu í gærkvöld. Sérfræðingur segir Ísland eigi erindi á mótið.

Birt

15. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,