Mennta- og barnamálaráðherra ætlar að breyta einkunnakerfi í grunnskólum. Formaður Kennarasambandsins heyrði fyrst í dag af áformunum og sakar stjórnvöld um samráðsleysi.
Aðalmeðferð í Þorlákshafnarmálinu hófst í Landsrétti í morgun. Tveir sakborningar áfrýjuðu sautján ára fangelsisdómi fyrir að verða karlmanni á sjötugsaldri að bana í fyrra.
Biðlistar eftir meðferð í Krýsuvík lengjast sífellt. Forstöðumaður segir kókaínneyslu aukast og vill auknar forvarnir.
Sigurvegari þingkosninga í Ungverjalandi fór í morgun í fyrstu viðtölin í ríkisfjölmiðlum landsins í eitt og hálft ár. Hann krefst afsagnar forsetans, sem er bandamaður Viktors Orbans.
Persónuvernd endurgreiðir sektir sem hún lagði á fimm sveitarfélög fyrir að nota skýjalausn Google í grunnskólastarfi.
Bóndi í Kjósarhreppi telur brotið á kosningarétti sínum. Þar verður ekki gengið til sveitarstjórnarkosninga því aðeins einn framboðslisti barst.
Hljómsveitin VÆB frumflytur lag Barnamenningarhátíðar 2026 í Breiðholtsskóla í hádeginu. Við lítum inn í fréttatímanum.
Kvennalandsliðið í fótbolta færðist skrefi nær HM-sæti með sigri á Úkraínu í gærkvöld. Sérfræðingur segir að Ísland eigi erindi á mótið.