Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 14. júní 2026

Enn er óljóst hvort Bandaríkin og Íran undirriti friðarsamning í dag líkt og Bandaríkjaforseti hafði boðað. Sendinefnd frá Katar er mætt til Írans til aðstoða við ljúka samningum.

Stjórnmálafræðingur telur undirliggjandi ólgu í Samfylkingunni benda til þess óánægja með fleira en bara útlendingamál innan flokksins. Stefnu flokksins hafi verið breytt mikið án umræðu eða formlegra ferla.

Öflug jarðskjálftahrina varð í Bárðarbungu í gær og í nótt. Jarðeðlisfræðingur líkir öskju Bárðarbungu við glas sem er orðið hálffullt, og því ólíklegt fari gjósa þar í bráð. Náttúran eigi það þó til koma á óvart.

Svisslendingar höfnuðu naumlega tillögu Svissneska þjóðarflokksins um setja þak á íbúafjölda landsins, samkvæmt útgönguspám. Þjóðaratkvæðagreiðslu um þessa tillögu lauk í dag.

Sveitarstjórn Árborgar hefur ákveðið halda aftur af gjaldskrárhækkunum sem lið í baráttunni við verðbólgu.

Þjóðaröryggisráðuneyti Kína heldur því fram erlend ríki noti njósnaskjaldbökur og njósnafiska til safna viðkvæmum gögnum um sjávarumhverfi á kínversku hafsvæði.

Birt

14. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,