Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 14. júlí 2026

Stríð Bandaríkjanna og Írans magnast enn. Bandaríkin hafa gert linnulausar árásir á Íran síðan í nótt og Íranar sprengdu tvö flutningaskip á Hormús-sundi. Hafnbann Bandaríkjanna á írönsk skip tekur gildi í kvöld.

Hagfræðingur Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar segir skýr merki um samdrátt alls staðar í byggingariðnaðinum. Atvinnuleysi áhyggjuefni.

Rússar skoða beina skipum frá Azov-hafi vegna árása Úkraínumanna. Bandalagsþjóðir Úkraínu lofuðu á sameiginlegum leiðtogafundi í gær meiri stuðning við loftvarnir landsins í stríðinu gegn Rússum.

Formaður Eflingar segir viðmið fyrir ræstingarútboð ríkisins vera lykillinn til uppræta vandamál geirans.

Íslenskt tónlistarfólk hefur orðið undir á streymisveitum. Plötuútgefandi segir erfiðara koma íslenskri tónlist á framfæri þegar hlustendur hafa alla heimsins tónlist í vasanum.

Ambur eða hvalaæla sem finnst í íslenskum fjörum getur verið milljóna virði og eftirsótt hráefni í dýrustu ilmvötn heims.

Bastilludagurinn, þjóðhátíðardagur Frakklands er í dag - og Frakkar mæta Spánverjum í fyrri undanúrslitaleik heimsmeistaramóts karla í fótbolta í kvöld.

Birt

14. júlí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,