Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 23. maí 2026

Þingmaður Samfylkingarinnar segir nýja skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands varpa ljósi á mjög háar fjárhæðir sem útgerðin hafi fjárfest í íslensku atvinnulífi. Framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi segir þær óverulegar.

Mikill viðbúnaður er í suðurhluta Kaliforníu í Bandaríkjunum vegna hættu á eiturefnaleka úr tanki. Óttast er hann geti sprungið og hefur fjörutíu þúsund manns verið gert yfirgefa heimili sín.

Oddviti Sjálfstæðismanna í borginni liggur undir feldi og metur stöðuna eftir einkafundi með þremur oddvitum í gær. Dregið gæti til tíðinda í dag.

Veitur ætla bæta eftirlit við framkvæmdir í Skammadal í Mosfellsbæ vegna litarmengunar þaðan sem sett hefur mark sitt á ána síðustu daga. Veitur stefna því bora tuttugu og níu holur á komandi árum, þar af fimmtán í ár.

Úrslitaleikur Meistaradeildar kvenna í fótbolta er í dag. Sigursælasta lið keppninnar, Lyon, mætir þar stórliði Barcelona sem er leika til úrslita sjötta árið í röð.

Birt

23. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,