Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 11. febrúar 2026

Níu voru skotnir til bana og 25 særðust í tveimur skotárásum í skóla og heimahúsi í kanadískum smábæ í gær. Lögregla telur gerandann þann sama í báðum árásum.

Fangelsismálastjóri segir skoða þurfi alvarlega hvernig símar komust inn á Litla-Hraun. Símar fundust í fimm af níu klefum, í aðgerðum lögreglu á Íslandi og Europol gegn alþjóðlegum fíkniefnahring.

Hryðjuverkamálið er fyrir Hæstarétt í dag. Sindri Snær Birgisson og Ísidór Nathanson voru sýknaðir í héraði og Landsrétti af ákæru fyrir skipuleggja hryðjuverk. Ríkissaksóknari taldi Hæstarétt verða fjalla um lagatúlkun Landsréttar.

Reyðfirðingar fengu enga viðvörun áður en öflug sprenging varð í efnisnámu skammt frá bænum í gærkvöld. Hús nötruðu og fólk á útivistarsvæði skammt frá varð óttaslegið.

Búist er við NATO auki á næstunni varanlega viðveru á norðurslóðum til tryggja öryggi og varnir bandalagsríkja. Framkvæmdastjóri bandalagsins boðar til blaðamannafundar síðdegis.

Ísland stendur í stað á lista Transparency International sem mælir spillingu ríkja.

Bandaríska tónlistarkonan Britney Spears hefur selt réttinn allri tónlist sinni á jafnvirði 25 milljarða króna.

Glæfralegt heljarstökk, sem var bannað í hálfa öld, hefur vakið athygli á skautasvellinu á Vetrarólympíuleikunum. Engin stig fást fyrir stökkið.

Danski knattspyrnustjórinn Thomas Frank hefur verið rekinn frá Tottenham. Liðið er í fallbaráttu í ensku úrvalsdeildinni.

Birt

11. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,