Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 19. mars 2026

Sunnan hvassviðri eða stormur gengur yfir landið. Samgöngur eru úr skorðum og óvissustig vegna ofanflóðahættu. Gul viðvörun er í gildi víðs vegar um land fram á laugardagsmorgun.

Laun hafa hækkað umfram innistæðu og ríkisstjórnin ætlar sýna enn frekara aðhald í rekstri hins opinbera, sagði fjármálaráðherra á Alþingi í morgun. Stjórnarandstaðan segir óveðurský hrannast upp.

Framkvæmdasýslan Ríkiseignir harmar eldsvoða sem varð á Stuðlum í október 2024. Ekki var brugðist við ítrekuðum kröfum um úrbætur á brunavörnum.

Íranar gerðu í morgun árásir á stærstu gasvinnslustöð heims í Katar. Bandarísk stjórnvöld íhuga fjölga í herliði sínu í Mið-Austurlöndum um þúsundir.

Deilur um stuðning við Úkraínu setja mark sitt á leiðtogafund Evrópusambandsins, og líka áhrifin sem átökin í Mið Austurlöndum hafa á orkuverð í álfunni.

Nauðsynlegt er bálstofan í Fossvogi fái áframhaldandi undanþágu svo líkbrennsla leggist ekki af, mati framkvæmdastjóra hjá Kirkjugörðum Reykjavíkurprófastdæma.

Íslenska karlalandsliðið í handbolta mætir Svíþjóð í vináttuleik Hlíðarenda í kvöld

Birt

19. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,