Sunnan hvassviðri eða stormur gengur yfir landið. Samgöngur eru úr skorðum og óvissustig vegna ofanflóðahættu. Gul viðvörun er í gildi víðs vegar um land fram á laugardagsmorgun.
Laun hafa hækkað umfram innistæðu og ríkisstjórnin ætlar að sýna enn frekara aðhald í rekstri hins opinbera, sagði fjármálaráðherra á Alþingi í morgun. Stjórnarandstaðan segir óveðurský hrannast upp.
Framkvæmdasýslan Ríkiseignir harmar eldsvoða sem varð á Stuðlum í október 2024. Ekki var brugðist við ítrekuðum kröfum um úrbætur á brunavörnum.
Íranar gerðu í morgun árásir á stærstu gasvinnslustöð heims í Katar. Bandarísk stjórnvöld íhuga að fjölga í herliði sínu í Mið-Austurlöndum um þúsundir.
Deilur um stuðning við Úkraínu setja mark sitt á leiðtogafund Evrópusambandsins, og líka áhrifin sem átökin í Mið Austurlöndum hafa á orkuverð í álfunni.
Nauðsynlegt er að bálstofan í Fossvogi fái áframhaldandi undanþágu svo líkbrennsla leggist ekki af, að mati framkvæmdastjóra hjá Kirkjugörðum Reykjavíkurprófastdæma.
Íslenska karlalandsliðið í handbolta mætir Svíþjóð í vináttuleik að Hlíðarenda í kvöld