Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 24. janúar 2024

Flugvél með sjötíu og fjóra innanborðs fórst í Belgorod-héraði í Rússlandi í morgun sögn rússneskra yfirvalda. Þau segja Úkraínumenn hafa skotið hana niður. Úkraínumenn fullyrða eldflaugar hafi verið í vélinni.

Sífellt fjölgar fyrirtækjum og sjálfstætt starfandi Grindvíkingum sem sækja um launastuðning Vinnumálastofnunar vegna hamfaranna. Nokkur tilfelli hafa komið upp þar sem starfsfólki hefur verið sagt upp.

Um tugur erlendra flugfélaga skilar yfirvöldum ekki farþegalistum þrátt fyrir þeim það skylt samkvæmt lögum. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir ljóst einhver í stjórnsýslunni þurfi gyrða sig í brók.

125 liggja í valnum eftir árásir næturinnar á Gaza. Viðræður standa yfir í Kaíró um vopnahlé og hafa fregnir borist af því það þokist í samkomulagsátt.

Prófessor í mannfræði sem hefur unnið rannsóknum sem snúa flóttafólki, óttast viðhorf Íslendinga breytast. Ekki rétt spyrða saman fólk sem leitar vernd og glæpastarfsemi.

Útvarpsstjóri hafnar því verið varpa ábyrgð á þátttöku Íslands í Eurovision yfir á keppendur í Söngvakeppninni. Ríkisútvarpið taki endanlega ákvörðun um þátttöku.

Styttan af séra Friðriki hefur verið fjarlægð af stalli sínum í miðborg Reykjavíkur. Ekki er búið taka ákvörðun um hvað komi í staðinn.

Áhugi á tónleikum Laufeyjar í Hörpu í mars minnir á miðasöluna fyrir tónleikana með Justin Bieber, Justin Timberlake og Ed Sheeran. Miðar á þriðju tónleikana seldust upp á nokkrum sekúndum.

Frumflutt

24. jan. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,