Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 6. júní 2026

Barnafjölskyldur - sem á vísa úr landi - verða vistaðar í sérstöku húsnæði og þurfa ekki deila rými með öðrum samkvæmt breytingartillögu meirihluta allsherjar- og menntamálanefndar við frumvarp um brottfararstöð. Formaður nefndarinnar gerir ráð fyrir frumvarpið fari í lokaatkvæðagreiðslu í næstu viku.

Verkalýðsfélagið Hlíf í Hafnarfirði sakar ræstingarfyrirtækið Nostru um ítrekuð brot á kjarasamningum. Laun hafi verið greidd seint og illa og starfsmenn kvartað undan vinnuskipulagi. Fyrirtækið hafnar ásökunum félagsins alfarið.

Íranar gerðu flugskeytaárásir á bandarískar herstöðvar í Mið-Austurlöndum í nótt. Þrátt fyrir vopnahlé hefur lítið dregið úr átökum.

Tæplega 500 smit hafa verið greind í ebólufaraldri sem gengur yfir Lýðstjórnarlýðveldið Kongó í Afríku. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin varar við því faraldurinn geti orðið stærsti til þessa.

Kosið verður til þings í Armeníu á morgun. Kosningarnar snúast mestu leyti um hvort Armenar vilji styrkja tengslin við Evrópu enn frekar og þá fjarlægast Rússa.

Eftir sigur á Úkraínu í gær er ljóst Ísland endar í þriðja sæti undanriðils síns fyrir heimsmeistaramót kvenna í fótbolta. Á þriðjudag mæta heimsmeistararnir frá Spáni á Laugardalsvöll í lokaleik undankeppninnar, og svo tekur umspil við hjá Íslandi.

Birt

6. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,