Barnafjölskyldur - sem á að vísa úr landi - verða vistaðar í sérstöku húsnæði og þurfa ekki að deila rými með öðrum samkvæmt breytingartillögu meirihluta allsherjar- og menntamálanefndar við frumvarp um brottfararstöð. Formaður nefndarinnar gerir ráð fyrir að frumvarpið fari í lokaatkvæðagreiðslu í næstu viku.
Verkalýðsfélagið Hlíf í Hafnarfirði sakar ræstingarfyrirtækið Nostru um ítrekuð brot á kjarasamningum. Laun hafi verið greidd seint og illa og starfsmenn kvartað undan vinnuskipulagi. Fyrirtækið hafnar ásökunum félagsins alfarið.
Íranar gerðu flugskeytaárásir á bandarískar herstöðvar í Mið-Austurlöndum í nótt. Þrátt fyrir vopnahlé hefur lítið dregið úr átökum.
Tæplega 500 smit hafa verið greind í ebólufaraldri sem gengur yfir Lýðstjórnarlýðveldið Kongó í Afríku. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin varar við því að faraldurinn geti orðið sá stærsti til þessa.
Kosið verður til þings í Armeníu á morgun. Kosningarnar snúast að mestu leyti um hvort Armenar vilji styrkja tengslin við Evrópu enn frekar og þá fjarlægast Rússa.
Eftir sigur á Úkraínu í gær er ljóst að Ísland endar í þriðja sæti undanriðils síns fyrir heimsmeistaramót kvenna í fótbolta. Á þriðjudag mæta heimsmeistararnir frá Spáni á Laugardalsvöll í lokaleik undankeppninnar, og svo tekur umspil við hjá Íslandi.