Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 8. janúar 2024

Formenn Miðflokksins og Flokks fólksins telja líklegt tillaga um vantraust á matvælaráðherra verði lögð fram þegar þing kemur saman eftir jólafrí. Óvíst er hvort þingmenn Sjálfstæðisflokks kysu gegn tillögunni.

Landris við Svartsengi á Reykjanesskaga er meira en það var fyrir eldgosið í síðasta mánuði. Hraðinn á landrisinu hefur aukist á ný, eftir það hægðist á því í síðustu viku.

Utanríkisráðherra Bandaríkjanna fordæmir hugmyndir um Gaza-búum á flótta verði komið fyrir fjarri heimkynnum sínum stríði loknu. Síðar í vikunni hefst aðalmeðferð fyrir Alþjóðadómstóli Sameinuðu þjóðanna, þar sem Suður-Afríka sakar Ísrael um þjóðarmorð á Gaza.

Formaður Eflingar segir mögulegt skrifað verði undir kjarasamninga fyrir mánaðamót. Það ræðst þó af útspili stjórnvalda.

Þýskir bændur flykktust í þúsunda tali út á götur og hraðbrautir í Þýskalandi í morgun á traktorunum sínum, til mótmæla áformum stjórnvalda um hætta niðurgreiðslum á eldsneyti fyrir bændur. Talsverð röskun hefur orðið á umferð víða um landið vegna mótmælanna.

Þingmaður Sjálfstæðisflokksins vill skipulags- og leyfismál á Alþingisreitnum verði færð frá borginni til þingsins. Hann vinnur frumvarpi sem lagt verður fyrir þingið. Tjaldbúðir við Alþingishúsið eru kornið sem fyllti mælinn.

Notkun á heitu vatni hefur aukist mikið á Fljótsdalshéraði undanfarin ár. Heitavatnslindir í Urriðavatni duga í fáeina áratugi.

Kvikmyndin Oppenheimer er sigurvegari Golden Globe verðlaunanna sem voru veitt í nótt.

Frumflutt

8. jan. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,