Yfirlögregluþjónn segir rangt að eigur skipverja á Bandero, skipi Paul Watson samtakanna, hafi verið haldlagðar án heimildar. Útlendingastofnun hefur enn ekki birt úrskurð um endurkomubann og brottvísun áhafnarinnar.
Enn ein hitabylgjan plagar íbúa Evrópu og miklir þurrkar hafa leitt til þess að orka er af skornum skammti, til dæmis í Ungverjalandi. Búist er við allt að fjörtíu stiga hita víða í austurhluta álfunnar.,
Úkraínuher gerði árás á vöruhús netverslunarinnar Wildberries í Rússlandi í nótt. Herinn hefur gert nokkrar árásir á sömu keðju síðustu daga. Minnst níu voru drepnir í árásum Úkraínuhers í Rússlandi í gær.
Meint skotvopn sem fundust í lögregluaðgerð á Akureyri síðdegis í gær reyndust vera leikfangabyssur. Fimm drengir um tvítugt voru handteknir en síðar sleppt.
Þrátt fyrir fækkun íbúa á Norðurlandi vestra er þörf á nýjum íbúðum mikil að sögn sveitarstjóra Húnaþings vestra. 8 nýjar íbúðir fóru í útleigu um leið og þær voru tilbúnar.
Veðrið lék við þjóðhátíðargesti í Vestmannaeyjum um helgina. Formaður þjóðhátíðarnefndar segir gesti almennt hafa verið til fyrirmyndar.