Fjármálaráðherra segir óviðunandi að stórar opinberar framkvæmdir tefjist vegna kærumála. Hann boðar frumvarp í haust sem tekur á þessu.
Slökkviliðsmenn á Spáni hafa náð tökum á gróðureldunum sem hafa orðið minnst 12 að bana í Andalúsíu. Sjö manns er enn saknað og um 1500 þurftu að flýja heimili sín.
Bandaríkjaforseti er illur eftir að út spurðist að Íranir hefðu skipulagt að ráða hann af dögum. Hann segist reiðubúinn að útrýma Íran.
Lögreglan í Bretlandi rannsakar dauða fyrrverandi ráðherra og sjónvarpsstjörnu sem morð en segir ekkert benda til þess að glæpurinn hafi verið pólitískur.
Formaður Landssambands veiðifélaga er bjartsýnn á veiðisumarið framundan þrátt fyrir lélegt upphaf. Vel hefur veiðst í Borgarfirði undanfarna daga.
Og svo virðist sem kattarminta sé jafnáhrifarík í baráttunni við moskítuflugur eins og flugnafæluefnið DEET