Tveir eru í haldi lögreglu vegna hnífaárásar á menningarnótt. Loka þurfti tveimur skemmtistöðum vegna fjölda gesta undir lögaldri og lögregla hafði afskipti af á fjórða tug ungmenna vegna unglingadrykkju.
Forseti Bandaríkjanna segir Kanada vilja njóta kosta þess að vera ríki í Bandaríkjunum– án þess að vera það. Fordæmalaust viðskiptastríð ríkjanna er í uppsiglingu eftir að viðræður um tollasamninga fóru út um þúfur.
Tæplega sjöhundruð og fimmtíu þúsund laxar og seiði drápust í sjókvíaeldi á Íslandi í júní. Þetta er óvenjumikill laxadauði, segir deildarstjóri hjá Matvælastofnun.
Forseti Úkraínu segir hættulegt að hafa kosningar áður en stríðinu lýkur, eins og fyrrverandi samráðherra hans hefur krafist. Slíkt geti klofið úkraínsku þjóðina.
Steinn Ármann Magnússon er látinn 61 árs að aldri. Hann á langan leiklistarferil að baki og var meðal brautryðjenda í íslensku gríni á tíunda áratugnum.
Tvö hundruð pylsur fóru ofan í svanga hlaupara í Ormahlaupinu í gær. Menningarhátíðin Ormsteiti er á Egilsstöðum og Fljótsdalshéraði um helgina þar sem veðrið leikur við íbúa og gesti.
Knattspyrnusamband Íslands gaf í morgun út yfirlýsingu, ásamt hinum knattspyrnusamböndunum á Norðurlöndum, þess efnis að samböndin treysti ekki lengur forseta alþjóða knattspyrnusambandsins, Gianni Infantino.