Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 12. september 2026

Heilbrigðisráðherra hefur þungar áhyggjur af stöðunni innan SÁÁ. Hún óttast samtökin verði af gríðarlegri fagþekkingu og fylgist grannt með gangi mála.

Hútar hafa náð tökum á ströndinni við Rauðahaf og hertóku þrjár mikilvægar eyjur á Rauðahafi í skyndisókn í gær.

Mikil spenna ríkir í Svíþjóð þar sem þingkosningar verða á morgun. Aðeins munar tveimur prósentustigum á hægri og vinstri blokkunum.

Talið er veðurfyrirbærið El Nino verði öflugri en nokkru sinni undir lok árs og þó nokkur ríki hafa þegar lýst yfir neyðarástandi.

Atvinnuvegaráðherra segir bagalegt frumvarp um lagareldi hafi dagað uppi á síðasta þingvetri. Forgangsröðun réði því málið rataði ekki á þingmálaskrá.

Landverðir stöðvuðu rútu á vegum Arctic Adventures á Þingvöllum vegna olíuleka. Þjóðgarðsvörður segir ámælisvert rútan hafi verið í notkun þrátt fyrir lekann. Forstjóri fyrirtækisins harma atvikið.

Birt

12. sept. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,