Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 18. október 2026

Átján hundruð voru handteknir og yfir fimmtán hundruð verslanir urðu fyrir skemmdum í og eftir mótmælin í Frakklandi í gær. Innanríkisráðherra Frakklands segir skemmdarverkin til rannsóknar.

Íslendingur sem tók þátt í mótmælunum varð vitni að því þegar brotist var inn í ráðhúsið í borginni Angers. Margir skemmdarvargar hafi verið meðal mótmælenda.

Maður sem lést í slysi sem varð á Gæsavatnaleið norðan Vatnajökuls á föstudagskvöld var íslenskur og búsettur á Norðurlandi.

Nokkuð var um foktjón í óveðri í gær, og þakplötur og -rennur losnuðu. Gul viðvörun vegna hvassviðris verður í gildi um allt land í dag og fram á kvöld.

Framboð á bótoxmeðferðum eftir óhefðbundnum leiðum hefur aukist. Lyfjastofnun varar eindregið við slíkum meðferðum.

16 kínversk skip voru rekin frá ströndum Taívans í morgun. Stjórnvöld í Taívan segja skipin hafa tekið þátt í fjölþáttaárásum.

Stella í orlofi verður sett á svið í Borgarleikhúsinu á næsta ári. Stóra verkefnið er að stinga sögunni í samband við tíðarandann segir annar höfundur leiksýningarinnar.

og það stefnir í æsispennandi titilbaráttu í Bestu deild kvenna í fótbolta.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,