
Hádegisfréttir
Útvarpsfréttir.
Donald Trump forseti Bandaríkjanna hefur fellt úr gildi fyrirhugaðar viðskiptaþvinganir og tolla á rússneska orku. Forseti Úkraínu segir þetta hvetja Rússa til frekari árása.
Þingmaður Viðreisnar segir að þingnefnd um málefni barna með fjölþættar stuðningsþarfir sem Jón Gnarr, þingmaður utan flokka, fór fyrir hafi ekki komið saman undanfarna mánuði. Jón sagði sig úr þingflokki Viðreisnar í vikunni, meðal annars vegna óánægju með forgangsröðun ríkisstjórnar hvað varðar málefni barna.
Yfir 160 manns hafa þegar verið handteknir við upphaf mótmæla víða um Frakkland. Búist er við tugum þúsunda á götum borga landsins í dag.
Þakplötur eru farnar að fjúka af íþróttahúsi í Grundarfirði og hafa björgunarsveitarmenn verið kallaðir út. Sunnanstormur gengur yfir landið í dag. Appelsínugular viðvaranir verða í gildi við Breiðafjörð, frá því síðdegis og fram á kvöld.
Tetra-kerfið er ekki á förum á næstunni, segir sérfræðingur í neyðarfjarskiptum. Hann segir mikilvægt að girða fyrir öll mistök áður en nýtt talstöðvarkerfi verður tekið í gagnið og slökkt á Tetra-kerfinu, sem viðbragðsaðilar nota í dag.
Eldur kviknaði í álverinu í Straumsvík í annað sinn á skömmum tíma í gærkvöld.
Kornbóndi á Suðurlandi vill fá að skjóta álftir sem éta uppskeru af ökrum hans í stórum stíl. Hann segir það rökleysu að fuglinn sé friðaður.
Og svo eru það kökurnar og bakkelsið, við fylgjumst með bakstursmaraþoni í lok fréttatímans.

Útvarpsfréttir.