Hádegisfréttir

Leyft öllum aldurshópum

Hádegisfréttir 17. september 2026

Fjölda spurninga er enn ósvarað um mögulega aukaaðild Kanada að ESB. Lagaprófessor segir að EES-ríki eins og Ísland verði að fylgjast vel með framvindu mála.

Aðeins einn af 30 starfsmönnum á byggingarsvæði í Garðabæ reyndist vera með sveinspróf þegar eftirlitsmenn Fagfélaganna komu þar við á mánudag. Öryggis- og launamálum var líka ábótavant.

Afli sem ráðstafað er til byggðakerfisins minnkar um tólf hundruð og tíu tonn á milli ára. Mest eru áhrifin á línuívilnun og skel- og rækjubætur. Útgerðarmaður á Drangsnesi hefur áhyggjur af stöðunni.

Samherja hefur verið gert að loka fiskþurrkun á Laugum eftir að úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála afturkallaði starfsleyfi þeirra. Tuttugu starfsmenn fiskþurrkunarinnar voru upplýstir um þetta í morgun.

Bráðaþjónusta Landspítalans verður efld með nýrri deild og tuttugu nýjum rýmum sem voru tekin í notkun í morgun. Markmiðið er að létta álagið á Bráðamóttökuna.

Skógarþrestir á höfuðborgarsvæðinu syngja á fjölmörgum mállýskum. Líffræðingur hjá Náttúrusafni Kópavogs vinnur að því að kortleggja þær um land allt.

Og nýr landsliðsþjálfari þýska karlalandsliðsins í fótbolta, Jürgen Klopp,hefur valið 44 leikmenn í sinn fyrsta landsliðshóp. Fram undan eru fjórir leikir í Þjóðadeildinni

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,