Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 22. maí 2026

Lögmaður fjölskyldu Andemariams Beyene, sem lést eftir plastbarkaígræðslu, segir dóm yfir íslenska ríkinu vegna stórfellds gáleysis Tómasar Guðbjartssonar læknis mikinn sigur fyrir fjölskylduna.

Oddviti Sjálfstæðismanna í Reykjavík ræðir við Framsókn, Viðreisn og Miðflokk í dag. Dregið gæti til tíðinda í borginni um helgina. Pattstaða er í Hafnarfirði eftir viðræðuslit Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar. Nýr meirihluti er í burðarliðnum í Hveragerði.

Miklu minni peningar eru settir í búa til námsgögn núna en fyrir tuttugu árum. Stjórnarformaður þróunarsjóðs námsgagna segir það bitni mest á nemum sem þurfa mikinn stuðning.

500 Grænlendingar mótmæltu opnun ræðisskrifstofu Bandaríkjanna í Nuuk í gær og sögðust ekki vera til sölu.

Rauði krossinn hefur hætt allri húsnæðisþjónustu við flóttafólk á Íslandi. Neyðarskýli samtakanna var lokað í morgun.

Fulltrúar aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins hafa fagnað ákvörðun Bandaríkjamanna um hætta við fækka hermönnum í Póllandi. Bandaríkjaforseti tilkynnti um þetta skömmu áður en utanríkisráðherrar NATO ríkjanna í Svíþjóð í morgun.

Mótmælendur kveiktu í tjöldum á sjúkrahúsi í austur Kongó þar sem sjúklingum með ebólu er sinnt. Yfir 130 hafa látist úr ebólu í landinu.

og Pep Guardiola er hættir í lok leiktíðar sem þjálfari Manchester City.

Birt

22. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,