Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 9. maí 2026

Rússar fögnuðu sigurdeginum með hersýningu í dag. 81 ár er síðan Sovét ríkin sigruðu nasista í seinni heimsstyrjöld. Hersýningin var látlausari en síðustu ár vegna ótta um drónaárásir Úkraínumanna.

Fimm eru særðir eftir ekið var á hóp fólks í breskum í nótt. Einn þeirra er í lífshættu.

Peter Magyar verður settur í embætti forsætisráðherra Ungverjalands í dag. Búist er við tugir þúsunda safnist saman og fagni tímamótunum.

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra, borgastjórinn í Reykjavík og rektor Listaháskólans skrifuðu í dag undir viljayfirlýsingu um framtíðarhúsnæði Listaháskóla Íslands.

Oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík segir bagalegt kvittanir og fylgiskjöl hafi vantað við færslur borgarstjóra á innkaupakort sem hún hefur frá Reykjavíkurborg.

Birt

9. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,