Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 18. júlí 2026

Eldarnir í Drammen eru þeir mestu í Noregi í seinni tíð, samkvæmt almannavörnum landsins. Slökkvistarf stóð í alla nótt. Enn logar í skógi við hverfið þar sem eldarnir brutust út í gær. Mikil mildi þykir engin alvarleg slys hafi orðið.

Forstjóri Eimskips segir vonbrigði sjóflutningar skuli ekki undanþágu frá losunarreglum ESB eins og tilkynnt var með flugsamgöngur í gær. Það komi niður á neytendum. Greiðslur Eimskips fyrir losunarheimildir skipta milljörðum króna á ári.

Stjórnvöld í Hollandi segjast engin vilyrði hafa gefið fyrir því Ísland fái undanþágur frá sjávarútvegsstefnu ESB, líkt og utanríkisráðherra hefur gefið í skyn.

Gervigreindarumboðsmenn herja á íslenska rithöfunda og vilja kynna bækur þeirra gegn gjaldi. Mörgum íslenskum bókum virðist hafa verið hlaðið inn í gervigreindarforrit í leyfisleysi.

Maður sem er grunaður um standa baki skotárás norðan við Álaborg í Danmörku í gær hefur játað verknaðinn. Hann var leiddur fyrir dómara í dag.

Ljúfan matarilm leggur yfir Hljómskálagarðinn í Reykjavík um helgina. Bestu götubitavagnar landsins bjóða allskyns kræsingar til sölu, og keppa um titilinn, besti götubitinn.

Birt

18. júlí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,