Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 25. ágúst 2026

Tveir hafa látist í Stuðlagili á tveimur árum, þrátt fyrir mikla uppbyggingu til bæta öryggi við ferðamannastaðinn. Karlmaður sem féll í Jöklu fannst látinn í gærkvöld.

Kínverjar segja boðaðar viðskiptaþvinganir Bandaríkjamanna, gegn öllum ríkjum og fyrirtækjum með tengsl við Íran, ólöglegar. Bæði ríkin hóta grípa til ráðstafana til verja hagsmuni sína.

Sonur Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur, þingmanns Flokks fólksins, er í gæsluvarðhaldi grunaður um aðild andláti föður síns. Fjölskyldan óskar eftir friði til syrgja.

Réttarhöldum yfir Líbíumanni sem er sakaður um aðild Lockerbie-málinu hefur verið frestað í þriðja sinn. sönnunargögn komu fram á föstudag í þessu 37 ára máli.

Forsætisráðherra brást við gagnrýni grunnskólakennara á stjórn menntamála á opnum fundi í gær með því segja menntamálaráðuneytinu ganga gott til. Kennarinn sagði menntamálin aldrei hafa verið í verri höndum.

Skólastjóri leik- og grunnskóla Grindavíkur segir dásamlegt heyra í nemendum aftur í skólanum. Hann var settur í morgun.

Í vikunni hefja á fimmta hundruð börn skólagöngu. Í skólabyrjun þyngist umferð iðulega og ökumenn eru beðnir vera sérstaklega vakandi fyrir ungum gangandi og hjólandi vegfarendum.

Birt

25. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,