Hádegisfréttir

Leyft öllum aldurshópum

Hádegisfréttir 4. október 2026

Tveir erlendir ferðamenn eru látnir eftir bílslysið á Jökuldalsheiði í gær. Tveir til viðbótar eru þungt haldnir.

Aldrei hafa jafn margar konur og börn leitað til Kvennaathvarfsins og nú. Nýtt og stærra athvarf var tekið í notkun í síðustu viku og er þegar þétt setið.

Feðgar voru skotnir til bana og einn særður alvarlega í skotárás í norska bænum Halden í morgun. Karlmaður á þrítugsaldri er í haldi grunaður um morð.

Allt að 160 milljónir ganga að kjörborðinu í Brasilíu í dag. Flavio Bolsonaro, sonur fyrrverandi forseta sem situr í stofufangelsi, skorar sitjandi forseta á hólm.

Umhverfis- og orkustofnun bíður eftir fyrirmælum frá Geislavörnum ríkisins áður en gengið verður frá kaupum á byssu sem skimar fyrir skaðlegum efnum í vörum sem keyptar eru á netinu.

Ungar konur með börn og eldri konur í krabbameinsmeðferð finna ró í prjónamennsku, segir eigandi prjónaverslunar. Endurteknar handahreyfingar hafa róandi áhrif á taugakerfið.

Úrhellisrigning tafði Formúlu 1 keppnina í Malasíu í morgun. Sami ökuþór stóð uppi sem sigurvegari og þegar síðast var keppt í Malasíu fyrir níu árum.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,