Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 10. mars 2026

Engin merki eru um átökum linni í Mið-Austurlöndum þrátt fyrir Bandaríkjaforseti hafi sagt styttast í stríðslok. Ísraelsher hefur gert fjölda loftárása á Líbanon í morgun.

Íslensk kona segir undanfarnar nætur í Barein hafa verið hræðilegar vegna árása Írana á eyjuna. Hún og sonur hennar eiga sæti í björgunarflugi frá Riyadh Sádi-Arabíu í dag.

Fjármálaráðherra gerir ráð fyrir hátt olíuverð á heimsvísu gæti aukið verðbólgu hér á landi. Mögulega komi það til með hafa áhrif á stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans í næstu viku.

Lögreglan á Norðurlandi eystra fór ekki fram á gæsluvarðhald yfir sakborningum vegna rannsóknar á kynferðisbroti á Akureyri um helgina. Yfirmaður rannsóknardeildar segir þeim hafa verið sleppt lokinni skýrslutöku.

Umræða um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið heldur áfram í dag en klárast líklega ekki fyrr en í næstu viku.

Skólastjóra í grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu hefur í annað sinn verið vikið úr starfi vegna kvartana frá starfsfólki.

Nýir fasteignaskattar á orkumannvirki gætu hækkað raforkuverð mati nokkurra orkufyrirtækja. Stóriðjan er varin með langtímasamningum og í fyrstu gæti hækkunin lent á almenningi og smærri fyrirtækjum.

Febrúarmánuður einkenndist af öfgum í veðri og var fimmti heitasti í heiminum frá því mælingar hófust.

Arna Sigríður Albertsdóttir keppti í sinni fyrstu grein á Vetrarólympíumóti fatlaðra í morgun.

Birt

10. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,