Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 4. febrúar 2026

Níu menn sem segjast hafa verið beittir ofbeldi á fósturheimilinu Bakkakoti á Rangárvöllum krefja ríkið bóta. Lögmaður þeirra krefst þess málið verði rannsakað og tryggt þetta endurtaki sig ekki.

Formaður Félags fósturforeldra segir ríkið hafi ekki hugmynd um hversu mörg börn séu eða hafi verið í fóstri. Könnun félagsins bendir til þess fimm barnaverndarþjónustur sinni engu eftirliti

Seðlabankastjóri segir hækkun vörugjalda um áramótin hafi komið á óheppilegum tíma í baráttu við verðbólguna. Stýrivextir verða áfram 7,25 prósent.

Úkraínumenn, Rússar og Bandaríkjamenn ræða um lok Úkraínustríðsins í Sameinuðu arabísku furstadæmunum í dag. Rússar hafa hótað hertaka allt Donetsk-hérað beri viðræðurnar ekki árangur.

Starfsfólk hjúkrunarheimilisins Hraunbúða í Vestmannaeyjum er áhyggjufullt segir forstjóri HSU. Andlát á heimilinu er til rannsóknar.

Fljótsdalshreppur lánaði vegagerðinni umtalsverðar fjárhæðir eftir hrun til vegaframkvæmda. Hreppurinn vill innheimta allt 200 milljónir af lánsfénu.

Íbúar í Evrópusambandinu hafa áhyggjur af öryggismálum. Níu af hverjum tíu í nýrri könnun vilja meiri samstöðu gegn utanaðkomandi ógnum.

Leikir í undanúrslitum bikarkeppni karla í körfubolta í gær voru æsispennandi, þá réðst hvaða lið mætast í úrslitum á laugardag. Í kvöld eru undanúrslit í kvennaflokki.

Birt

4. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,