Níu menn sem segjast hafa verið beittir ofbeldi á fósturheimilinu Bakkakoti á Rangárvöllum krefja ríkið bóta. Lögmaður þeirra krefst þess að málið verði rannsakað og tryggt að þetta endurtaki sig ekki.
Formaður Félags fósturforeldra segir að ríkið hafi ekki hugmynd um hversu mörg börn séu eða hafi verið í fóstri. Könnun félagsins bendir til þess að fimm barnaverndarþjónustur sinni engu eftirliti
Seðlabankastjóri segir að hækkun vörugjalda um áramótin hafi komið á óheppilegum tíma í baráttu við verðbólguna. Stýrivextir verða áfram 7,25 prósent.
Úkraínumenn, Rússar og Bandaríkjamenn ræða um lok Úkraínustríðsins í Sameinuðu arabísku furstadæmunum í dag. Rússar hafa hótað að hertaka allt Donetsk-hérað beri viðræðurnar ekki árangur.
Starfsfólk hjúkrunarheimilisins Hraunbúða í Vestmannaeyjum er áhyggjufullt segir forstjóri HSU. Andlát á heimilinu er til rannsóknar.
Fljótsdalshreppur lánaði vegagerðinni umtalsverðar fjárhæðir eftir hrun til vegaframkvæmda. Hreppurinn vill nú innheimta allt að 200 milljónir af lánsfénu.
Íbúar í Evrópusambandinu hafa áhyggjur af öryggismálum. Níu af hverjum tíu í nýrri könnun vilja meiri samstöðu gegn utanaðkomandi ógnum.
Leikir í undanúrslitum bikarkeppni karla í körfubolta í gær voru æsispennandi, þá réðst hvaða lið mætast í úrslitum á laugardag. Í kvöld eru undanúrslit í kvennaflokki.