Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 18. september 2023

Kostnaður bifreiðaeigenda eykst um tugi þúsunda á næsta ári, gangi fyrirhuguð hækkun á bifreiðagjöldum í gegn. Þau hafa þá hækkað um 163 prósent á undanförnum tveimur árum.

Norskir kafarar komu til landsins í gærkvöld og eru leið á Vestfirði þar sem þeir ætla rekkafa eftir eldislaxi. Kafararnir eru með skutulbyssur og skjóta eldisfiskinn ef færi er á.

Rússar fullyrða þjóðarmorð ástæða innrásarinnar í Úkraínu. Yfirheyrslur hófust í morgun við Alþjóðadómstólinn í Haag um þær fullyrðingar. Rússar krefjast þess málinu verði vísað frá.

Stjórnarformaður Sorpu segir smærri sorpbrennslustöðvar gætu mögulega hentað Íslandi betur en stóra sem hætt hefur verið við reisa í Álfsnesi.

Ausandi rigning verður á Austfjörðum í dag og á morgun og appelsínugul viðvörun tekur gildi á Austfjörðum á miðnætti vegna hættu á flóðum og aurskriðum. Vel er fylgst með skriðuhættu á Seyðisfirði og Eskifirði.

Þúsunda er enn saknað eftir flóðin í Líbíu, erfiðlega gengur bera kennsl á lík. Tugir þúsunda misstu heimili sín og eru í brýnni þörf fyrir hússkjól, hreint vatn og mat.

Magnús Kristinn Magnússon er kominn á lista Interpol yfir týnt fólk. Hann sást síðast á flugvellinum í Dóminíska lýðveldinu fyrir rúmri viku.

Tilverur, fyrsta kvikmynd Ninnu Pálmadóttur leikstjóra í fullri lengd, verður opnunarmynd RIFF í ár. Á dagskrá hátíðarinnar eru meðal annars finnskur fjölskyldufarsi, bandarísk verðlaunamynd og lettneskar teiknimyndir.

Valur vann Stjörnuna í Bestu deild karla í fótbolta í gærkvöld og kom þannig í veg fyrir nýkrýndir bikarmeistarar Víkings yrðu Íslandsmeistarar heima í sófa.

Frumflutt

18. sept. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,