Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 1. maí 2023

Tugir eru særðir eftir miklar loftárásir Rússa á Úkraínu seint í nótt. Þungi er færast í aðgerðir rússneska innrásarhersins.

Verkalýðurinn sameinast á baráttufundum og kröfugöngum víða um land í dag, fyrsta maí. Hundrað ár eru liðin frá fyrstu kröfugöngunni hér á landi.

Félag talsmanna umsækjenda um alþjóðlega vernd er ósammála mati Útlendingastofnunar á aðstæðum í Venesúela, en stofnunin hefur synjað umsækjendum þaðan undanfarna daga. Kærunefnd Útlendingamála hefur fimm slíkar synjanir til skoðunar.

JPMorgan Chase tók í dag við rekstri First Republic bankans í Kaliforníu, sem er næst stærsti bandaríski bankinn í sögunni til þess falla.

Öryggi landsmanna er ógnað með fyrirhugaðri uppbyggingu í Skerjafirði í Reykjavík mati Sjálfstæðismanna víða um land. Þeir krefjast þess ákvörðun tekin um framtíð Reykjavíkurflugvallar áður en ráðist er í framkvæmdir í Skerjafirði.

Lögreglan í Texas leitar enn manns sem skaut fimm til bana á föstudaskvöld. Byssumaðurinn brást ókvæða við þegar foreldrar sem voru svæfa börn sín kvörtuðu undan hávaða þegar hann skaut úr riffli sínum í grenndinni.

Frumflutt

1. maí 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,